Logo Mótothjólasafn

TÍAN

Bifhjólaklúbbur Norðuramts

Næsti fundur

Næsti fundur er miðvikudaginn 1. febrúar 2012 klukkan 20.00 í Mótorhjólasafni Íslands

Fundir

  • Fundir eru haldnir mánaðarlega í vetur, fyrsta miðvikudag mánaðarins kl 20. í Mótorhjólasafni Íslands.
  • Allar skipulagðar ferðir á vegum Tíunnar skráðar í dagatalinu til vinstri á síðunni.
Þorrablót Tíunnar 2012
Skrifað af Óli Pálmi   
fimmtudagur, 19 janúar 2012

Tían mun blóta Þorrann þann 4. febrúar næstkomandi í Hafnarvitanum á Akureyri (húsið á planinu hjá Eimskip).

Húsið opnar kl 19:30 og hefst borðhald kl 20:00.

Aðeins 3500kr fyrir greidda félaga og 4000kr fyrir ógreidda.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Afslættir til félagsmanna
Skrifað af Óli Pálmi   
fimmtudagur, 17 nóvember 2011
Nú fer að koma að laufabrauðsgerð hjá mörgum og því er við hæfi að minnna á að Tíu-félagar fá 15% afslátt hjá Veislubakstri gegn framvísun félagsskírteinis.
Upplýsingar um afslætti sem standa félagsmönnum til boða færðu með því að smella á Afslættir hér fyrir ofan.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Tækjadelluball í Sjallanum
Skrifað af Óli Pálmi   
þriðjudagur, 15 nóvember 2011
Áhugafólk um mótorsport athugið. Eitt risa mótorslútt í desember. Ball til styrktar Hetjunum, félagi langveikra barna á Norðurlandi

Annað árið í röð höldum við ball fyrstu helgina í desember til styrktar góðu málefni.

Húsið opnar kl. 21.00. Happadrætti verður með góðum vinningum, eitthvað gott frá K2M, Stillingu, Flugfélagi Íslands, Bjössa í Vélaborg, Würth og fleirum.

Þegar húsfyllir er orðinn verða boðnir upp tveir einstaklingar til að þjóna viðkomandi kaupanda í eina klukkustund “algerlega innan siðsamlegra marka“. Fyrir konurnar og sleðadeildina mun enginn annar en Björn nokkur frá Hesjuvöllum verða seldur hæstbjóðanda, en fyrir karlana er það en sveipað dulúð.
Dabbi Rún á sérstakar þakkir skilið fyrir óeigingjarnan þátt sinn í þessu framtaki og sér hann um veitingar þetta kvöld ásamt Ölgerðinni sem býður upp á glaðning fyrir þá fyrstu.

Hljómsveit kvöldsinns er MYRKÁ sem heldur uppi rokki til morguns ;)

Miðaverð er 1200 krónur (happdrættismiðar seldir sér á 500 kr)
Allir vinningar og aðhöld eru gefin eða styrkt af fyrirtækjum á Akureyri.
Öll vinna og skipulagning er í höndum Sober Rider MC Norðurdeild.

Öll hjálp eða aðrar upplýsingar Í síma 822-5207 Palli Sober.

Hetjurnar, félag aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, er aðildarfélag Umhyggju sem er regnhlífarsamtök fyrir foreldrafélög langveikra barna á Íslandi.
Félagið var stofnað 13. október 1999. Nú eiga 90 fjölskyldur aðild að félaginu.
Tilgangur félagsins er fjórþættur:
1. Að gæta hagsmuna langveikra barna og aðstandenda þeirra
2. Að miðla upplýsingum um hina ýmsu sjúkdóma
3. Að gefa foreldrum vettvang til að hittast og ræða það sem á þeim brennur varðandi börnin og vandamál þeirra
4. Að gefa þessum fjölskyldum tækifæri til að hittast og eiga góðar stundir saman.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Næsti fundur, 2. nóvember 2011
Skrifað af Óli Pálmi   
þriðjudagur, 01 nóvember 2011

Minnum á fundinn annað kvöld klukkan 20:00 á safninu þar sem planið er að horfa á einhverja skemmtilega mótorhjólamynd saman. Þær myndir sem eru í boði eru "On any Sunday ", "The World's Fastest Indian " og "Faster ".

Hægt er að kjósa um hvaða mynd á að sýna á Facebook síðu klúbbsins (eða senda póst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það ).

 Vonumst til að sjá ykkur sem flest, og að sjálfsögðu er kaffi á könnunni! :-)

 Stjórnin

 

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Haustógleði Tíunnar 2011
Skrifað af Óli Pálmi   
fimmtudagur, 22 september 2011

Jæja gott fólk, þá er komið að því.

Haustógleði Tíunnar verður haldin laugardaginn 8. október. Nú í lok hjólavertíðarinnar er tilvalið að hittast, borða og hafa gaman saman.

Haustógleðin verður haldin í Vélsmiðjunni og opnar húsið kl 19:00 og hefst borðhaldið um kl 20. Verð á Ógleðina er 2500kr fyrir greidda félagsmenn en 3500kr fyrir aðra gesti. Söng- og dansolíu verður hver að koma með fyrir sig.

Eftir matinn verða síðan ýmsar uppákomur og lifandi tónlist þar sem allir ættu að geta dansað af sér ra***atið.

Og nú er spurt: hvernig fer ég að því að skrá mig á þessa frábæru skemmtun?

Svarið er einfalt: Þú sendir tölvupóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða hringir í síma 869-3332.

 

 - Matseðill kvöldsins -

  • Grillaðar kjúklingabringur
  • Grillað lamb
  • Sósa
  • Kartöflugratín
  • Kartöflusallat
  • Ferskt sallat
  • Gular baunir

 

Með kveðju

Óli Pálmi #208

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
Næsti fundur
Skrifað af Óli Pálmi   
fimmtudagur, 22 september 2011

Þá er vetrardagskráin tekin við og nú verður fundur einu sinni í mánuði, alltaf fyrsta miðvikudag mánaðarins kl 20:00. Næsti fundur verður því 5. október kl 20:00 á mótorhjólasafninu.

Vertu fyrstur til að skrifa athugasemd

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 1 - 11 af 343
 
Joomla Templates by Joomlashack